Fara beint í efni
Gervigreind auðveldar

Hinn fullkomni þjónustufulltrúi

Menni er heildarlausn sem sér um þitt þjónustuver allan sólarhinginn á yfir 100 tungumálum á öllum samskiptamiðlum.

Hafa samband
Fyrsti rammi kynningarmyndbands Menni

Dæmi um fyrirtæki sem treysta Menni

  • Bílaleiga Akureyrar - Höldur
  • Hekla
  • Hertz
  • Jarðböðin – Earth Lagoon
  • GO Car Rental
  • ION Adventure Hotel
  • Slippfélagið
  • Visit Reykjavík
  • Rent.is
  • Fjallsárlón
  • The Lava Tunnel
  • Hvammsvík
  • Krauma
  • Kúkú Campers
  • Laugarvatn Fontana
Eiginleikar

Auðveldasta leiðin til að innleiða gervigreind

Menni tengist við allar samskiptaleiðir og við öll helstu kerfi til að afgreiða mál

  • Menni tengist Bókun, sem gerir gervigreindar þjónustufulltrúanum kleift að afgreiða bókanir, breyta þeim og afbóka fyrir viðskiptavini.

  • Tengdu Shopify, WooCommerce og önnur kerfi til að sjálfvirknivæða þjónustu, mæla með vörum og sinna pöntunum.

  • Menni tengist við alla þá samskiptamiðla sem fyrirtækið þitt notar í dag, þar má nefna spjallmenni á vefsíðu, Messenger, tölvupóst, WhatsApp og fleira.

  • Menni tengist auðveldlega við síma og getur því svarað símtölum allan sólarhringinn á yfir 100 tungumálum, þar með íslensku!

Íslensk fyrirtæki treysta Menni

Á hverjum degi svara fulltrúar Menni fyrirspurnum, símtölum og tölvupóstum fyrir íslensk fyrirtæki.

  • 2.000.000+Fyrirspurnir afgreiddar

  • 100+Fyrirtæki í þjónustu

  • 50.000+Símtöl afgreidd

  • 75.000+Tölvupóstar afgreiddir

Menni bakendinn

Full yfirsýn yfir þjónustuna

Í Menni bakendanum sérðu öll samskipti og ítarlega tölfræði, úr öllum rásum á einum stað.

  • Öll samskipti á einum stað

    Spjall, símtöl og tölvupóstar, og hvernig fulltrúinn svaraði.

  • Ítarleg tölfræði

    Sjáðu hvernig samskiptin skiptast og þróast frá degi til dags.

  • Ábendingar á svör

    Sendu inn ábendingu á svar og Menni teymið sér um rest.

Myndskreyting af greiningu í Menni bakendanum: samskipti, lotur, þakkir, svöruð mál, mál sem vantar í þekkingargrunn og ruslpóstur, dagleg samskipti og skipting þeirra.
Viðskiptavinir

Þetta hafa viðskiptavinir okkar að segja

Knútur Rafn Ármann, eigandi Friðheima, í gróðurhúsinu
Friðheimar

Við notum gervigreindarlausnir Menni til að bæta þjónustuna við þá yfir 280.000 viðskiptavini sem við tökum á móti árlega.

Knútur Rafn Ármann

Framkvæmdastjóri, Friðheimar

Merki Hvammsvík Sjóböð

Lausnir Menni hafa sparað okkur ómældan tíma og vinnu við að svara og þjónusta þúsundir fyrirspurna með frábærum árangri.

Skúli Mogensen

Eigandi og framkvæmdastjóri, Hvammsvík Sjóböð

Merki Krauma náttúruböð

Ég er hæstánægður með samstarfið. Gervigreindarfulltrúinn okkar, hún Vigdís, skilar af sér frábærum svörum til viðskiptavina og ég lít björtum augum á framtíðina.

Jónas Friðrik Hjartarson

Framkvæmdastjóri, Krauma náttúruböð

Merki Go Car Rental

Nú fá viðskiptavinir svör við öllum helstu spurningum á aðeins nokkrum sekúndum í stað klukkustunda. Þessi lausn hefur gjörbreytt þjónustunni okkar og minnkað álagið á starfsfólki samskiptadeildar.

Aron Freyr Haraldsson

Markaðsstjóri, Go Car Rental

Merki KúKú Campers

Innleiðing Menni gekk ótrúleg vel og gaman að sjá hversu fljótt það tók að innleiða svona skemmtilega og flotta lausn. Eftir innleiðingu þarf viðskiptavinurinn ekki að bíða í röð eftir þjónustufulltrúa til að fá svör við sínum spurningum, sparar mikinn tíma og hjálpar til að betrumbæta þjónustu í gegnum spjall.

Ólafur Erling Ólafsson

Markaðsstjóri, KúKú Campers

Merki Sérskoðun

Innleiðingarferli lausnarinnar algjörlega “fool proof” og það hefur verið ánægjulegt að vinna með Menni teyminu.

Skúli Sigurðsson

Eigandi og meðstjórnandi, Sérskoðun

Merki Go Campers

Lausn Menni gerir okkur kleift að svara öllum fyrirspurnum fljótt og örugglega, þannig tryggjum við að ekki verði þjónusturof gagnvart viðskiptavinum okkar. Í harðnandi samkeppni og meiri hraða í viðskiptum er mikilvægt að innleiða nýjungar til að mæta þeim kröfum sem markaðurinn gerir til okkar.

Eiríkur Rafn Björnsson

Viðskiptastjóri, Go Campers

Merki Mega Zipline Iceland

Við sáum mikið tækifæri í því að nýta þessa sniðugu lausn í samskiptum við kúnna og sérstaklega yfir veturinn þegar við erum með takmarkaðri starfsemi.

Hallgrímur Kristinsson

Eigandi og framkvæmdastjóri, Mega Zipline Iceland

Merki ABC Hotel

Gervigreindarlausn Menni hefur stórbætt skilvirkni innahúss hjá okkur og á sama tíma bætt upplifun viðskiptavina. Tæknin er einföld, árangursrík og ég mæli eindregið með gervigreindarlausnum Menni.

Hargita Berec

Rekstrarstjóri, ABC Hotel

Spurt og svarað

Algengar spurningar

  • Innleiðingin tekur aðeins um 14 daga.

  • Menni býður upp á 30 daga ókeypis fyrir Spjallmenni lausnina. Vinsamlegast hafið samband fyrir verðlagningu á Raddmenni og Póstmenni.

  • Vefsíða fyrirtækis er nýtt til að þjálfa fulltrúann ásamt öðrum gögnum sem fyrirtæki óska eftir.

  • Í Menni bakendanum sérð þú skýrt yfirlit þar sem hægt er að senda inn ábendingar á svör og Menni teymið sér um rest.

  • Já, í Menni bakendanum getur þú séð yfirlit yfir öll samskipti og ítarlega tölfræði.

Gervigreind auðveldar

Viltu fá þinn þjónustufulltrúa?

30 dagar frítt, engin skuldbinding

Hafa samband

Tryggðu þér Spjallmenni

Fylltu út upplýsingarnar hér að neðan og við höfum samband.